Jæja blogg blogg blogg og aftur blogg
Núna er orðið mjög langt síðan maður hefur sett inn eina færslu
en það er einungis vegna þess að slátturinn hefur tekið allan minn
tíma.
Í gær vaknaði ég klukkan 8 til að byrja að vinna, það gekk þó
ekki betur en það að það byrjaði að rigna um leið og ég hafði tekið
tækin til. Ég og bróðir minn ákváðum þá að leggja okkur í bílnum í
von um að rigningin gengi yfir og viti menn... eftir klukkutíma
svefn í bílnum var hætt að rigna og jörðin byrjuð að þorna.
Við renndum okkur þá upp í grafarvog þar sem átti að hefjast
handa, með í för voru hvíta þruman, kobbi kallinn, flingtroll 6,
hondan, lovísa, ragga raka, siddi sópur, bjarni litli og bjarni
stóri og síðan auðvitað ég og jón.
Fyrsti garðurinn sem tók við okkur var blessaður
tannlæknagarðurinn að vesturfoldum 23, síðastliðin skipti hefur
verið alveg gríðarlegt magn af grasi þar en af einhverjum ástæðum
þá var það bara svona rétt 5 cm hátt. Þar sem að grasið var allt
saman frekar rakt þá urðu gangstéttirnar mjög skítugar en haldiði
ekki að siddi sópur hafi komið sterkur inn og hreinsað
gangstéttirniar eins og hann ætti lífið að leysa.
Næst var það síðan laufrimi sem tók við en þar virðist grasið
ekkert vaxa, kobbi var þar aðal maðurinn keyrði út um
allt í leit að einhverju grasi að slá en það var nú ekki mikið um
það.
Síðasti garðurinn sem ég og Jón slógum saman var
þorláksgeisli. Þar stjórnaði Jón Ásgeir honum kobba
af mikilli leikni á meðan ég hljóp á eftir hondunni og er það
enginn smá hraði. Niður brekkur, upp brekkur og allstaðar þar á
milli var hondan. Ég tek því ekki annað í mál en að óska
hondunni til hamingju með að vera tæki dagsins.
Núna er ég hérna með nýjann lið sem ég ætla að
henda inn en það er fífl dagsins og það var án efa Bjarni
bensínbrúsi en hann gerði okkur þann grikk að klárast inni í
miðjum garði. Það var ekki fyrr en Binni Bensínkort tók upp á
því að dæla í bjarna smá kjarki að Bjarni gat aftur farið
að gefa bensín.
jæja jú takk fyrir takk takk takk